TORQ brúsarnir eru frá gæðamerkinu Zefal sem eru frábærir brúsar með góðu gripi og hannaðir með þarfir hjólafólks í huga. Brúsarnir leka ekki ásamt því að vera hálf gegnsæir með mælistiku og breitt op, svo einstaklega auðvelt er að blanda TORQ duftinu í þá.
Brúsarnir eru úr sérstöku polypropyleni sem er létt og sveigjanlegt ásamt því að vera lyktarlaust og hefur því ekki áhrif á gæði eða bragð drykksins.
Það er einstaklega auðvelt að þrífa brúsana ásamt því að þeir mega fara í uppþvottavél sem lágmarkar áhættu að gerlagróðri í brúsunum.