Stacker2 Octagon Pre-Workout – Tropical Rage
Öflugt pre-workout fyrir fókus, sprengikraft og krefjandi æfingar
Stacker2 Octagon er kraftmikið pre-workout sem var þróað með þarfir bardagaíþróttafólks í huga – þar sem hraði, úthald, sprengikraftur og einbeiting skipta öllu máli.
Formúlan inniheldur 12 virk innihaldsefni, þar á meðal citrulline malate, kreatín, beta-alanine, taurine og L-tyrosine ásamt 300 mg af koffíni í hverjum skammti.
Octagon hentar þó langt frá því eingöngu fyrir bardagaíþróttir. Formúlan hentar sérstaklega vel fyrir HYROX, CrossFit, spretti, fótbolta, interval-æfingar og aðrar ákafar æfingar þar sem reynir á endurtekin átök, úthald og einbeitingu.
Í einum 13 g skammti:
- 4.000 mg L-Citrulline Malate
- 3.000 mg Creatine Monohydrate
- 2.000 mg Beta-Alanine
- 1.000 mg Taurine
- 500 mg L-Tyrosine
- 300 mg Caffeine
- 200 mg Rhodiola extract
- 200 mg Crystal Pink Salt
- 133 mg Green Tea Extract
- 120 mg Zynamite® Mango Extract
- 47 mg Panax Notoginseng Extract
- 35 mg AstraGin®
- 5 mg BioPerine®
300 mg koffín
Öflugur koffínskammtur fyrir æfingar þar sem mikil árvekni og einbeiting skiptir máli. 4 g Citrulline Malate
Vinsælt innihaldsefni í pre-workout vörum og sérstaklega þekkt meðal þeirra sem stunda ákafar æfingar. 3 g Creatine Monohydrate
Kreatín eykur líkamlega frammistöðu í endurteknum lotum stuttra og mjög ákafra æfinga. Jákvæð áhrif fást með daglegri inntöku á 3 g af kreatíni. 2 g Beta-Alanine + 1 g Taurine
Öflug samsetning sem er algeng í pre-workout formúlum fyrir krefjandi æfingar.
L-Tyrosine + Rhodiola + Zynamite®
Octagon leggur ekki aðeins áherslu á líkamlega frammistöðu heldur inniheldur einnig sérvalin innihaldsefni sem passa vel inn í formúlu fyrir íþróttir þar sem einbeiting og skjót viðbrögð skipta máli.
Notkun: Blandið 2 skeiðum (13 g) saman við 250–300 ml af köldu vatni. Drekkið 20–30 mínútum fyrir æfingu. Ekki fara yfir 2 skeiðar á dag.
Octagon er sérstaklega spennandi fyrir þá sem stunda:
Bardagaíþróttir • HYROX • CrossFit • Spretti • Interval-æfingar • Fótbolta • Krefjandi hópíþróttir • Aðrar high-intensity æfingar
Tropical Rage 🌴Frískandi tropical-bragð sem gerir Octagon að góðum æfingafélaga þegar það er kominn tími til að setja kraft í æfinguna.
Mikilvægar upplýsingar: Hátt koffíninnihald – 300 mg í einum skammti.
Bragð: Tropical Rage
Stærð: 260 g
Fjöldi skammta: 20
Varan er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri. Ekki skal neyta annarra vara sem innihalda koffín samhliða notkun vörunnar. Ekki taka á fastandi maga. Ekki ætlað þunguðum konum eða konum með barn á brjósti.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífsstíls. Geymið þar sem börn ná ekki til.