Stacker2 Black Burn STIM-Free – 90 hylki
Koffínlaus formúla fyrir þig sem vilt stuðning við markmiðin – án koffíns.
Black Burn STIM-Free frá Stacker2 er sérstaklega hannað fyrir þá sem vilja sleppa koffíni og öðrum örvandi efnum. Formúlan byggir á blöndu af náttúrulegum olíum og inniheldur meðal annars CLA ásamt EPA, DHA, ALA og GLA fitusýrum.
Þar sem varan inniheldur engin örvandi efni og ekkert koffín hentar hún sérstaklega vel fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir koffíni, vilja takmarka koffínneyslu eða vilja geta tekið fæðubótarefnið seinna yfir daginn án þess að bæta við örvandi efnum.
Helstu eiginleikar
- Án koffíns
- Án örvandi efna
- Inniheldur CLA
- Inniheldur EPA & DHA
- Inniheldur ALA & GLA
- Hentar til notkunar bæði að degi og kvöldi
- 90 mjúk hylki
Hvernig skal nota: Takið 1 hylki, 3 sinnum á dag.
Black Burn STIM-Free er góður kostur fyrir þá sem vilja koffínlausa vöru samhliða markvissu mataræði og hreyfingu. Hún getur einnig hentað þeim sem þegar fá nóg koffín úr kaffi, orkudrykkjum eða pre-workout og vilja því ekki bæta meira koffíni við daglega rútínu.
90 hylki | Koffínlaust | Stim-Free
Athugið: Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis og heilbrigðs lífsstíls. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Geymið þar sem börn ná ekki til. Varan er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri.