PER4M Creatine Sherbet – Cherry Fizz 310g
Kreatín á alveg nýjan hátt – súrsætt Cherry Fizz sem bráðnar upp í munninum! 🍒
PER4M Creatine Sherbet – Cherry Fizz er skemmtileg og einstaklega þægileg leið til að taka kreatín daglega. Duftið er með súrsætu og fersku kirsuberjabragði með klassískum sherbet-fílingi og er hannað til að bráðna beint upp í munninum.
Engin blöndun, ekkert vatn og enginn hristibrúsi – þú tekur einfaldlega skeiðina beint í munninn, lætur duftið leysast upp og kyngir.
Hver skeið gefur 2,5 g af kreatín mónóhýdrati og tvær skeiðar gefa 5 g af kreatíni. Kreatín eykur líkamlega frammistöðu við endurteknar lotur af stuttri og ákafri áreynslu. Jákvæð áhrif fást með daglegri inntöku 3 g af kreatíni.
Helstu kostir:
- 5 g kreatín í 2 skeiðum
- 2,5 g kreatín í hverri skeið
- Kreatín mónóhýdrat
- Tekið beint í munninn – engin blöndun
- Enginn hristibrúsi eða vatn nauðsynlegt
- Bráðnar upp í munninum
- Sykurlaust
- Súrsætt Cherry Fizz bragð 🍒
- Fullkomið þegar þú ert á ferðinni
- 310 g – 100 skeiðar
Notkun: Takið 1–2 skeiðar á dag, sem gefur 2,5–5 g af kreatíni.
Hellið einni skeið beint upp í munninn, leyfið duftinu að leysast upp og kyngið síðan. Ef teknar eru tvær skeiðar skal klára og kyngja fyrri skeiðinni áður en sú næsta er tekin.
Innihaldsefni: Kreatín mónóhýdrat, sítrónusýra, natríumbíkarbónat, eplasýra, bragðefni og sætuefni (súkralósi).
310 g | 100 skeiðar | 2,5 g kreatín í skeið | Sykurlaust | Cherry Fizz 🍒