Kreatín töflur 90 stk

  • Tilboð
  • Venjulegt verð 2.390 kr


Kreatín töflur 90 stk

PER4M kreatín töflur veita 3.000 mg af hreinu kreatín mónóhýdrati í hverjum skammti í þægilegu hylkjaformi. Fullkomin lausn fyrir þá sem vilja taka inn kreatín án þess að þurfa að blanda það.

Kreatín er eitt mest rannsakaða fæðubótarefnið í heiminum og er vinsælt meðal þeirra sem vilja styðja við styrk, kraft og afköst við æfingar. Hylkin gera daglega notkun einfalda og henta vel bæði í ræktina, vinnuna eða á ferðalögum.

Helstu kostir

  • 3.000 mg kreatín mónóhýdrat í hverjum skammti
  • Micronised kreatín fyrir skjótari upptöku
  • Engin blöndun eða mæling nauðsynleg. Þægilegt hylkjaform
  • Hentar fyrir styrktarþjálfun og aðrar háákefðar æfingar
  • 30 skammtar 

Af hverju kreatín? Kreatín eykur líkamlega frammistöðu, bætir heilastarfsemi og getur verið gott fyrir hormónakerfið. Jákvæð áhrif fást með daglegri neyslu á 3 g af kreatíni.

Innihaldsefni

  • Kreatín mónóhýdrat
  • Magnesíumsterat
  • Hylki úr hýdroxýprópýlmetýlsellulósa (HPMC)

Notkun: Takið 3 hylki daglega með mat.

Hentar fyrir

  • Íþróttafólk
  • Kraftlyftingafólk
  • Fólk sem stundar líkamsrækt
  • Alla sem vilja þægilega leið til að taka kreatín daglega

Magn: 90 hylki (30 skammtar)


Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)